fimmtudagur, 31. júlí 2008

Sabbath.... Shaloom!

"I hope they make good friends!"
" I hope so tooooo!!!" skrækir Túttumamma um leið og hún tekur í spaðann á þessum mystíska manni og nágranna sem kominn er inn í garð til hennar. Það sem þau eiga við með þessu ávarpi hvors til annars er að dætur þeirra, Bimsa og Naomi hafa verið að mingla saman undanfarið í garðinum á Vesturbrú og virðast ætla að verða góðar vinkonur. Túttumamma er svo sem búin að sjá kappann áður... á Kristjaníuhjóli með börnin sín (svona hjól með vagni framan á, fyrir börn, gróserís og solleiðis).... sportandi um og kinkandi vinalega kolli til Túttunnar þar sem hún liggur í hundrað volta sólbaði á bleiku flísteppi að ná sér í brúnku.
Og nú eru Ron, Naomi og Adam litli kynnt til sögunnar.
Ron er frá Ísrael, kvikmyndagerðarðamaður með geis á dokjúmentarí og óstjórnlegan áhuga á norrænni sögu... einstæður faðir.... og býr á númer tólf. Naomi er átta, gullfalleg og feimin, Adam er fjögurra... með lykla- og bílaþráhyggju.
Þar sem börnin göslast um í garðinum gefst gott næði að spjalla við þennan áhugaverða mann sem hefur lifað tímana tvenna, annars vegar í stríðshrjáðu landi og hins vegar í norrænu landi sem er svo líkt fósturjörðinni ylhýru. Ekki spillir fyrir að mannfræðitúttan sótti kvikmyndahátíð á Ísafirði í vor um sjónræna mannfræði svo það skorti ekki umtalsefnið.
Svoooo gaman!... og ákveðið að grilla saman um kvöldið!
Hmm... bíðum við... Tútta stendur í eldhúsinu sínu og veit ekkert í sinn haus þar sem hún þekkir kappann ekki mikið. Er maðurinn múslimi? Á Tútta að grilla og hann að sitja og drekka bjór og chilla á meðan? Sitja svo afsíðis á meðan hann og börnin borða? Eða... er hann bókstafstrúar gyðingur... sabbath með alls konar seremóníum yfir sjöstjörnukertastjaka á föstudagskvöldi við sólarlag og tuttuguogfjögurra tíma fasta framundan?
Tútta ákveður að engir konfliktar trufli þetta grillpartý og spyr manninn hvort einhverjar arabískar versus íslenskar hindranir séu í veginum? Neibb... aldeilis ekki, grillum pulsur, kjúlla, opnum rauðvín og höldum áfram að blaðra um lífsins undur og merkilegheit. Og kvöldið var svo sannarlega áhugavert... fyrir mannfræðitúttu sem er svo áhugasöm að analísera lífsins gang og frumlegheit.
Þegar allir eru orðnir saddir, sælir og þreyttir er tímabært að kveðjast með von um að endurtaka ánægjulega samveru fljótlega.
Shaloom!

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæl Gulla

Varð bara kvitta fyrir mig. Rakst á bloggið þitt á síðunni hans Finnboga og mér þykir svo gaman að fylgjast með ykkur mæðgunum í Danaveldi. Skemmtilegt blogg.

Fæ kannski að leita ráða hjá þér síðar meir ef ég tek upp á því að fara í framhaldsnám í Køben.

Gangi ykkur vel ;)

Kveðja frá Fróni,
Lísa (kona Ásmundar)

Nafnlaus sagði...

Hurru! Takk og velbekom! Sko... danskalandið er alveg superb og háskólakonseptið ekki síðra. Hef líka verið að fylgjast með þér á þínu bloggi. Sem er svooo skemmtilegt. Gangi þér vel í þínu námi og ekkert sjálfsagðara en að vera þeim innan handar sem vilja víkka út sjóndeildarhringinn!
Kv. Gulla.

Nafnlaus sagði...

Ef að ég fer í sund og sé fullt af flottum kellingum í bikini,ber þær saman og hugsa með mér hverja mér líst best á, er það sjónræn mannfræði.
Kveðja
Y

Nafnlaus sagði...

Hæ aftur

Sá að ég var kominn á listann yfir bloggvini þannig að ég skellti þér á minn ;)

Mér líst ansi vel á CBS og gæti alveg hugsað mér að taka mastersgráðu þar síðar meir. Er samt ekki alveg búin að ákveða mig hvað ég ætla að gera þegar ég verð stór þannig að ég er bara opin fyrir öllu ;)

Kv,
Lísa