þriðjudagur, 9. september 2008

Kúrsafréttir af fyrirtækjarekstri

Kannast háskólanemar við svona sjón?


Hmm... Tútta hefur verið að huxa mikið síðustu viku. Þess vegna hefur hún lítið gasprað á þessu bloggi. Ástæðan er sú að Tútta er jú forstjóri og stjórnarformaður í eigin fyrirtæki og þar sem athyglin hefur beinst að nýhafinni skólagöngu hennar hér við Kaupmannahafnarháskóla, hefur verið nóg að gera. Mál hafa verið yfirfarin, haldnir hafa verið (eins manns)fundir, staðan endurskoðuð eins og gengur og gerist í fyrirtækjarekstri. Auk þess er Tútta önnum kafin við önnur störf, svo sem eins og sækja og senda verðmætasjóðinn í skólann, hjóla í búðina, láta læra, elda mat og þvo þvotta. Inn á milli hendir hún sér svo í tölvuna, fylgist með fyrirlestrum í Árnagarði og Odda, rumpar af tveimur verkefnum og hraðsendir þau til Íslands.

Tútta vill jú að reksturinn gangi upp hér í vetur og veit að einn starfsmaður annar ekki starfi margra. Eftir mikið hux ákveður Tútta að segja sig úr einu námskeiði hér og taka annað í staðinn heima. Það kom nefnilega í ljós að eitt námskeið átti upphaflega að vera kennt á ensku en reyndist svo vera á dönsku. Tútta er ekki alveg tilbúin í heilsu- og sjúkdómamannfræði á dönsku sprogi... auk þess sá Tútta að þetta yrði strembinn kúrs.

Tútta er alsæl með þessa ákvörðun sína, les nú tvö fög við Kaupmannahafnarháskóla og önnur tvö við Háskóla Íslands fram að jólum.

Og þess vegna er skælbrosandi vika fram undan. Bimsan á afmæli á morgun, Tútta bakar eina brúna og sú stutta fer með sleikjó í skólann handa bekknum sínum. Afmælispakkinn býður innpakkaður upp í skáp og von er á gestum.

En stærsta gjöfin kemur með flugi í hádeginu á morgun frá Íslandi. Leynigestur, ssshhh... og Bimsa veit ekki neitt!

Tíhí! Gaman!

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ohhh spennó :)

..en vonandi munu þessir kúrsar sem þú ert að taka ganga vel hjá þér, ég hef ekki trú á öðru..

hugs and kisses
kv.Tinna

Nafnlaus sagði...

Góð ákvörðun að taka annan kúrs í fjarnámi.

Og jú, ég kannast við svona sjón ;)

Baráttukveðjur frá Selfossi,
Lísa

Nafnlaus sagði...

Hlakka til að koma í ammóveislu á morgunn.... :)

Lov
G*

Unknown sagði...

Betra seint en ekki en til hamingju með afmælið um "daginn" elsku Birna "múslína" og mútta hennar
kv. Ragga seina

Unknown sagði...

Gott að hafa jafnvægi í þessu vonandi 2 í Danska og 2 á Klakanum, gangi þér sem best í náminu Gulla mín
kv. Ragga